Steve McClaren, fyrrum stjóri Newcastle á Englandi, tók við liði Queens Park Rangers eftir síðustu leiktíð.
Þessi ráðning var mjög umdeild en McClaren hætti sem ráðgjafi hjá ísraelska félaginu Maccabi Tel Aviv til að taka við QPR.
McClaren hefur ekki þótt náð góðum árangri sem þjálfari síðustu ár og stoppaði stutt hjá Derby og Newcastle áður en hann fór til Ísraels.
Það er óhætt að segja að QPR hafi farið illa af stað í ensku Championship-deildinni en liðið er á botninum eftir fjóra leiki.
Ekki nóg með það heldur er markatala liðsins 2-13 eftir fjórar umferðir en liðið hefur tapað öllum sínum leikjum.
QPR tapaði 3-0 fyrir Bristol City á heimavelli í kvöld en tapaði 7-1 fyrir West Brom í þriðju umferð.
Liðið tapaði þá fyrsta leik sínum 1-0 gegn Preston og öðrum leiknum 2-1 gegn Sheffield United.