Harpa Þorsteinsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, verður ekki meira með í sumar eftir að hafa slitið krossband.
Þetta staðfesti Harpa í samtali við RÚV í dag en hún meiddist í leik gegn Stjörnunni í úrslitaleik Mjólkurbikars kvenna á föstudag.
Ljóst er að þetta er áfall bæði fyrir Stjörnuna og íslenska landsliðið sem stefnir á að komast á sitt fyrsta HM.
Harpa er með slitið krossband og rifinn liðþófa í hné og mun líklega ekki spila fyrr en næsta vor.
Harpa mun missa af síðustu deildarleikjum Stjörnunnar sem og landsleikjum gegn Þýskalandi og Tékklandi í undankeppni HM.