Víkingur Ó. 3-4 Þróttur R.
1-0 Kwame Quee (20′)
2-0 Gonzalo Zamorano (24′)
2-1 Daði Bergsson (45′)
2-2 Viktor Jónsson (45′)
2-3 Viktor Jónsson (67′)
3-3 Ívar Reynir Antonsson (76′)
3-4 Viktor Jónsson (88′)
Það var boðið upp á ótrúlegan leik í Inkasso-deild karla í kvöld er Víkingur Ólafsvík fékk Þrótt Reykjavík í heimsókn.
Heimamenn frá Ólafsvík byrjuðu afar vel og komust í 2-0 með stuttu millibili en þeir Kwame Quee og Gonzalo Zamorano gerðu mörkin.
Undir lok fyrri hálfleiks svöruðu Þróttarar þó með tveimur mörkum er Viktor Jónsson og Daði Bergsson jöfnuðu leikinn í 2-2.
Viktor var svo aftur á ferðinni á 66. mínútu í síðari hálfleik og kom Þrótturum í 3-2.
Ívar Reynir Antonsson jafnaði metin fyrir Víking um tíu mínútum síðar og staðan orðin 3-3 í frábærum leik.
Viktor fullkomnaði svo þrennu sína þegar tvær mínútur voru eftir og tryggði gestunum stigin þrjú í ótrúlegum 4-3 sigri.