Real Madrid 2-0 Getafe
1-0 Dani Carvajal
2-0 Gareth Bale
Lið Real Madrid spilaði í kvöld sinn fyrsta deildarleik á þessu tímabili en liðið mætti Getafe í fyrstu umferð.
Barcelona vann sinn leik í fyrstu umferð örugglega í gær en liðið hafði betur gegn Alaves, 3-0.
Real svaraði þeim sigri með 2-0 sigri í kvöld en liðið var miklu sterkari aðilinn á Santiago Bernabeu.
Dani Carvajal kom Real yfir í fyrri hálfleik áður en Gareth Bale bætti við öðru marki liðsins í þeim síðari.