Kevin De Bruyne, leikmaður Manchester City á Englandi verður frá næstu tvo til þrjá mánuðina vegna meiðsla.
De Bruyne er einn allra mikilvægasti leikmaður City en hann meiddist á hné á dögunum og verður lengi frá vegna þess.
City verður því án leikmannsins í byrjun tímabilsins en liðið vann sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni gegn Arsenal, 2-0.
Ólíklegt er að De Bruyne spili næstu 12 deildarleiki City en byrjun liðsins í deildinni er þó ansi þægileg.
City gæti þó saknað hans mikið er liðið mætir Liverpool þann 7. október næstkomandi og svo Tottenham og Manchester United síðar í þeim mánuði.
Hér má sjá leikina sem De Bruyne mun líklega missa af.