Miðjumaðurinn Ilkay Gundogan hefur ekki áhyggjur af Manchester United eða Arsenal á þessu tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Gundogan spilar með Englandsmeisturum Manchester City en City er talið sigurstranglegast í deildinni þetta árið.
Gundogan svaraði spurningum stuðningsmanna í gær og var spurður út í hvaða lið ógnuðu titilvörn City hvað mest.
,,Chelsea og Liverpool virðast vera sterkustu keppinautar okkar í ár,“ skrifaði Gundogan.
Liverpool var eina liðið á síðustu leiktíð sem virtist eiga alvöru roð í City en liðið sló Englandsmeistarana til að mynda út úr Meistaradeildinni.
Chelsea er þá að byggja upp nýtt lið undir stjórn Maurizio Sarri eftir slakt gengi á síðasta tímabili.