Keith Hackett, fyrrum yfirdómari á Englandi, spyr sig af hverju margir dómarar á Englandi séu að hætta að dæma í ensku úrvalsdeildinni ungir að aldri.
Dómarinn Bobby Madley greindi frá því í gær að hann væri hættur að dæma í efstu deild en hann er aðeins 32 ára gamall.
Dómarar á borð við Mark Clattenburg og Howard Webb hættu einnig ungir en Clattenburg yfirgaf England fyrir deildina í Sádí Arabíu.
Hackett segir að þetta sé núverandi yfirdómaranum Mike Riley að kenna og að hann verði nú að horfa erlendis til að fá dómara í deildina.
,,Þetta er honum að kenna. Ég verð að spyrja, af hverju hætti Mark Clattenburg? Af hverju hætti Howard Webb? Af hverju hætti Mark Halsey? Þeir hættu allir snemma,“ sagði Hackett.
,,Þegar ég var yfirdómari fyrir nokkrum árum þá horfði ég í kringum mig og skoðaði að fá erlenda dómara í deildina. Ég held að Riley verði að gera það.„