Markvörðurinn Danijel Subasic hefur leikið sinn síðasta landsleik fyrir Króatíu en þetta staðfesti hann í gær.
Subasic var frábær fyrir Króata á HM í sumar og var hetja liðsins í vítaspyrnukeppnum gegn bæði Danmörku og Rússlandi.
Króatía komst alla leið í úrslitaleik mótsins en tapaði þar gegn Frökkum og fékk silfur á mótinu.
Subasic er aðalmarkvörður Monaco í frönsku úrvalsdeildinni en hann er 33 ára gamall í dag.
Subasic lék alls 44 landsleiki fyrir Króatíu og fylgir Mario Mandzukic sem ákvað einnig að leggja landsliðsskóna á hilluna á dögunum.