Það fer fram stórleikur í kvöld er lið Real Madrid og Atletico Madrid mætast í Ofurbikar Evrópu.
Real Madrid vann Liverpool í úrslitum Meistaradeildarinnar í maí og Atletico fagnaði sigri í Evrópudeildinni gegn Marseille.
Hér má sjá hvernig erkifjendurnir stilla upp í kvöld.
Real Madrid: Navas; Carvajal, Varane, Ramos, Marcelo; Kroos, Casemiro, Isco; Bale, Benzema, Asensio.
Atletico Madrid: Oblak; Juanfran, Savic, Godín, Lucas Hernández; Koke, Rodri, Saúl, Lemar; Diego Costa, Griezmann.