Atletico Madrid fagnaði sigri í Ofurbikar Evrópu í kvöld er liðið mætti grönnum sínum í Real Madrid í Eistlandi.
Það var boðið upp á fjörugan leik í kvöld og fyrsta markið skoraði Diego Costa fyrir Atletico eftir aðeins eina mínútu.
Karim Benzema jafnaði metin fyrir Atletico á 27. mínútu leiksins áður en Sergio Ramos kom liðinu yfir úr vítaspyrnu í þeim síðari.
Costa var svo aftur á ferðinni fyrir Atletico á 79. mínútu og jafnaði í 2-2 og tryggði liðinu framlengingu.
Þar hafði Atletico betur en þeir Saul og Koke skoruðu tvö mörk fyrir liðið með stuttu millibili í 4-2 sigri á erkifjendum sínum.