Miðjumaðurinn Steven N’Zonzi er orðinn leikmaður Roma á Ítalíu en þetta var staðfest í kvöld.
N’Zonzi gerir fjögurra ára samning við Sevilla en hann kláraði læknisskoðun hjá félaginu í dag.
Frakkinn vildi komast burt frá Sevilla á Spáni en talið er að Roma borgi um 25 milljónir puna fyrir leikmanninn.
N’Zonzi er 29 ára gamall en hann spilaði með Sevilla í þrjú ár en var áður hjá Stoke City á Englandi.
N’Zonzi var partur af leikmannahópi Frakklands í sumar er liðið varð heimsmeistari.