Mesut Özil, leikmaður Arsenal, ákvað að leggja landsliðsskóna á hilluna í sumar eftir keppni á HM í Rússlandi.
Özil og félagar duttu mjög óvænt út í riðlakeppni mótsins og ákvað miðjumaðurinn að segja þetta gott í sumar.
Ákvörðun Özil kom mörgum á óvart en hann hefur lengi verið einn mikilvægasti leikmaður landsliðsins.
Timo Werner, liðsfélagi Özil, segir að hann myndi taka vel á móti leikmanninum ef hann kýs að snúa aftur.
,,Ég held að margir í liðinu yrðu ánægðir ef Mesut Özil ákveður að koma aftur,“ sagði Werner við Bild en viðtalið verður birt í heild sinni á morgun.