Framherjinn Mario Mandzukic hefur ákveðið að leggja landsliðsskóna á hilluna 32 ára gamall.
Þetta staðfesti leikmaðurinn í dag en Mandzukic spilaði síðast landsleik sinn á HM í Rússlandi í sumar.
Það var enginn smá leikur en Króatía þurfti þá að sætta sig við 4-2 tap gegn Frökkum í úrslitaleik mótsins.
Mandzukic hefur lengi verið ein stærsta stjarna Króata en hann spilar með Juventus á Ítalíu.
Framherjinn spilaði 83 leiki fyrir þjóð sína á ferlinum og skoraði 33 mörk.