Jean-Michel Aulas, forseti Lyon, býst ekki við að sóknarmaðurinn Nabil Fekir yfirgefi félagið í sumar.
Chelsea og Liverpool vildu fá Fekir fyrr í sumar en þau skipti gengu ekki upp og er nú útlit fyrir að hann sé ekki að fara annað.
,,Allir leikmenn vilja semja við stór félög og við munum segja það sama við Nabil og við aðra leikmenn,“ sagði Aulas.
,,Við verðum að bíða og sjá þar til glugginn lokar en það eru 95 prósent líkur á að hann verði hér áfram.“
,,Við höfum séð hversu elskaður hann er af stuðningsmönnunum. Lyon er frábær fótboltaborg.“