Unai Emery, stjóri Arsenal, segir að Danny Welbeck hafi spilað vinstri bakvörð á æfingu liðsins um helgina.
Welbeck mun líklega ekki eiga fast sæti undir stjórn Emery á tímabilinu en er þó leikmaður sem er gott að hafa í hópnum.
,,Danny Welbeck er einn af þeim leikmönnum sem geta leyst margar stöður,“ sagði Emery við blaðamenn.
,,Hægri vængur, vinstri vængur, framherji og hann var með okkur í gær og spilaði vinstri bakvörð, hann stóð sig mjög vel.“
,,Mér líkar mjög við hans viðhorf. Hann vill hjálpa liðinu í mörgum stöðum og er alltaf jákvæður.“