Memphis Depay, leikmaður Lyon í Frakklandi, átti flottan leik fyrir liðið í dag sem mætti Amiens.
Lyon spilaði sinn fyrsta leik í frönsku úrvalsdeildinni og hafði betur með tveimur mörkum gegn engu.
Memphis skoraði annað mark Lyon í leiknum eftir að Bertrand Traore hafði komið liðinu yfir.
Mark Hollendingsins var stórkostlegt en hann skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu í síðari hálfleik.
Memphis smellhitti boltann sem fór í markmannshornið en markvörður Amiens átti aldrei séns.
New season, same old Memphis. ?#OL #Ligue1 pic.twitter.com/OXiynVMM7h
— Goal (@goal) 12 August 2018