Albert Guðmundsson er á förum frá hollenska félaginu PSV Eindhoven þar sem hann hefur fengið fá tækifæri.
Hollenski miðillinn ED greindi frá því í kvöld að Slavia Prague í Tékklandi væri mögulegur áfangastaður Alberts.
Samkvæmt heimildum Vísis er Albert hins vegar ekki á leið þangað og fer til AZ Alkmaar.
Vísir greinir frá því í kvöld að AZ borgi PSV tvær milljónir evra fyrir Albert og fer hann í læknisskoðun á morgun.
Albert er 21 árs gamall sóknarmaður en hann hefur spilað afar vel með varaliði PSV, Jong PSV í B-deildinni í Hollandi.
Tækifærin hafa hins vegar verið fá fyrir aðalliðið og mun Albert væntanlega fá fleiri mínútur hjá AZ sem er afar gott lið í Hollandi.