Víkingur Reykjavík hefur fengið mikinn liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi-deild karla.
Framherjinn Geoffrey Castillion hefur gert samning við Víking á ný en hann gerði 11 mörk í 16 leikjum fyrir félagið síðasta sumar.
Hollendingurinn var í kjölfarið keyptur til FH þar sem lítið hefur gengið upp og snýr hann nú aftur á Víkingsvöll.
Castillion gerir lánssamning við Víking og mun eflaust hjálpa liðinu í baráttu um Evrópusæti.
Castillion verður líklega mættur á völlinn á morgun er Víkingar spila við Stjörnuna á Heimavelli Hamingjunnar.