Það hefur mikið verið rætt um framtíð framherjans Gonzalo Higuain í sumar en hann er sagður á förum frá Juventus.
Cristiano Ronaldo var keyptur til Juventus í sumar og mun hann líklega taka sæti Higuain í byrjunarliðinu.
Samkvæmt Gianluca Di Marzio hefur AC Milan nú hafið viðræður við Juventus vegna Higuain.
Lengi var talað um að Higuain væri á leið til Chelsea en enska félagið hefur sýnt honum áhuga í sumar.
Nú gæti Higuain hins vegar óvænt samið við Milan en hann hefur áður einnig leikið með Napoli á Ítalíu.
Higuain elskar að skora mörk en hann hefur gert 32 og 23 mörk á tveimur tímabilum með Juventus.