Gunnleifur Vignir Gunnleifsson, markvörður Breiðabliks, spilaði með liðinu í kvöld í 4-1 sigri á sínu fyrrum liði FH.
Gunnleifur segir að FH-ingar hafi virkað þreyttir í kvöld eftir tvo leiki á stuttum tíma í Evrópudeildinni.
,,4-1 gegn FH er bara geggjað. Þeir eru þvílíkt gæðalið og við þurftum að hafa fyrir þessu, eðlilega,“ sagði Gunnleifur við Stöð 2 Sport.
,,Það eru gæðamenn þarna í öllum stöðum en frammistaðan var frábær hjá strákunum í grænu. FH hefur spilað Evrópuleiki og við þurftum að standast pressuna.“
,,Mér fannst þeir vera þreyttir, þeir ætluðu að skora sigurmark, þeir vilja alltaf vinna en þegar þeim tókst það ekki þá göngum við á lagið og hlaupum yfir þá.“