Sóknarmaðurinn Alex Iwobi er að skrifa undir nýjan samning við lið Arsenal á Englandi en frá þessu er greint í kvöld.
Iwobi fékk reglulega að spila undir stjórn Arsene Wenger hjá Arsenal en Frakkinn yfirgaf Emirates í sumar.
Framtíð Iwobi var þá í umræðunni en Unai Emery, nýr stjóri Arsenal, hefur engan áhuga á að hleypa Nígeríumanninum Burt.
Iwobi er samningsbundinn Arsenal til ársins 2020 en hann krotaði undir nýjan samning síðast 2015.
Samkvæmt enskum miðlum er Iwobi að fá nýjan samning hjá félaginu og krotar undir til ársins 2022.