David de Gea, markvörður Manchester United, var á sínum tíma mjög nálægt því að ganga í raðir Real Madrid á Spáni.
De Gea var við það að ganga í raðir Real árið 2015 og hefur eftir það stanslaust verið orðaður við spænska stórliðið.
Ander Herrera, liðsfélagi De Gea, segir að það séu stuðningsmenn félagsins sem eru að koma í veg fyrir skipti hans til Spánar.
,,Ég man eftir einu erfiðu sumri þegar allir voru að tala um Real Madrid og eftir fyrsta leikinn á Old Trafford voru allir að syngja nafnið hans. Hann sagði við mig að þetta væri magnað og að þeir væru bestu stuðningsmennirnir,“ sagði Herrera.
,,Hann getur verið mjög rólegur en hann er sá besti. Hann mun sýna það aftur. Hann er besti markvörður sem ég hef séð á ævinni og hefur okkur meiri möguleika á að vinna titla.“