Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, mun mæta sínu gamla félagi, Borussia Dortmuind á sunnudaginn.
Klopp var lengi stjóri Dortmund við góðan orðstír en færði sig yfir til Englands árið 2015.
Klopp hefur sýnt Christian Pulisic, leikmanni Dortmund áhuga en hann er mikill aðdáandi leikmannsins.
,,Hann er samningsbundinn Dortmund. Það er fyrsta vandamálið,“ sagði Klopp um leikmanninn.
,,Ég þekki Christian og mér hefur líkað við hann síðan hann var krakki. Hann er frábær leikmaður og á skilið að fólk hugsi um hann sem slíkan.“
,,Ef hann vill spila á Englandi þá getur hann það en hann er hjá mjög góðu félagi nú þegar.“