Framherjinn Sadio Mane hefur fengið nýtt treyjunúmer hjá Liverpool á Englandi en þetta var staðfest í dag.
Mane hefur undanfarin ár leikið í treyju 19 á Anfield en hann kom þangað frá Southampton.
Mane vildi breyta til og mun klæðast treyju númer tíu á næstu leiktíð. Það númer var síðast notað af Philippe Coutinho.
Coutinho stóð sig vel í tíunni hjá Liverpool en hann var seldur til Barcelona í janúar á þessu ári.
Búist var við að Nabil Fekir myndi fá tíuna hjá Liverpool fyrr í sumar en útlit er fyrir að hann sé ekki á leið til félagsins frá Lyon.