Jurgen Klopp, stjóri Liverpoool, hefur verið duglegur að eyða í leikmenn síðan hann tók við liði Liverpool.
Klopp hefur nú fengið leikmenn til félagsins fyrir 410 milljónir punda og hefur eytt meira en Jose Mourinho hjá Manchester United.
Eftir komu markvarðarins Alisson varð þetta ljóst en Alisson skrifaði undir samning á Anfield í gær og er dýrasti markvörður sögunnar.
Aðeins Chelsea og Manchester City hafa eytt meira síðan Klopp tók við Liverpool árið 2015 af Brendan Rodgers.
Hér má sjá eyðslu efstu sex síðan Klopp tók við.