Eden Hazard, leikmaður Chelsea, er sterklega orðaður við spænska stórliðið Real Madrid þessa stundina.
Real leitar að leikmanni til að taka við af Cristiano Ronaldo sem yfirgaf félagið fyrir Juventus í sumar.
Don Balon greinir frá því í kvöld að Real sé nú þegar búið að ákveða hvaða númer Hazard muni klæðast hjá félaginu.
Þetta verða einfaldlega bein skipti við Ronaldo en Hazard mun taka sjöuna af portúgölsku stjörnunni.
Hazard hefur undanfarin ár klæðst treyju númer tíu hjá Chelsea en var númer 17 fyrst er hann kom frá Lille í Frakklandi.