Chelsea í ensku úrvalsdeildinni tryggði sér miðjumanninn Jorginho frá Napoli í sumar.
Jorginho kemur með Maurizio Sarri til Chelsea en tvímenningarnir voru mjög góðir saman á Ítalíu.
Margir vita ekki við hverju þeir eigi að búast af Jorginho en hann segist sjálfur vera sérstakur leikmaður.
,,Leikstíll minn er ekki eitthvað sem þið hafið séð á Englandi,“ sagði Jorginho við heimasíðu Chelsea.
,,Ég vona innilega að ég muni henta leiknum hérna og mun gera allt svo að það geti gerst.“