Stjarnan tryggði sér sæti í næstu umferð Evrópudeildarinnar í kvöld eftir viðureign gegn eistnenska liðinu Kulju.
Stjarnan vann fyrri leik liðanna örugglega 3-0 á Samsung-vellinum en tapaði 1-0 í Eistlandi í kvöld.
Það er nú komið á hreint hvaða liði Stjarnan mætir en það er danska stórliðið FC Kaupmannahöfn.
FCK tryggði sér sæti í næstu umferð í kvöld eftir 1-1 jafntefli við finnska liðið KuPS í Danmörku.
FCK vann fyrri leik liðanna 1-0 í Finnlandi og fer því áfram samanlagt, 2-1.