Jose Mourinho, stjóri Manchester United, vonar að miðjumaðurinn Paul Pogba skilji af hverju hann stóð sig vel á HM.
Pogba var mjög góður síðari hluta keppninnar fyrir Frakkland en liðið endaði á því að lyfta heimsmeistaratitlinum.
Samband Mourinho og Pogba hefur verið í umræðunni en þeir hafa víst nokkrum sinnum lent í smávægilegu rifrildi.
Mourinho er þó ánægður með árangur miðjumannsins og sendi honum skýr skilaboð í gær.
,,Ég vona að hann skilji af hverju hann var svona góður á HM, það er það sem þetta snýst um,“ sagði Mourinho.
,,Hann verður að skilja af hverju hann stóð sig svona vel og þá sérstaklega á síðari hluta keppninnar.“