Lið FH á leik í Evrópudeildinni í kvöld er liðið spilar við FC Lahti frá Finnlandi en um er að ræða síðari leik liðanna.
Leikur kvöldsins fer fram í Kaplakrika en FH er í gríðarlega góðri stöðu fyrir leikinn í kvöld.
FH vann sannfærandi sigur á finnska liðinu 3-0 í Finnlandi og er því komið með annan fótinn í næstu umferð.
Hér má sjá byrjunarlið FH í kvöld.
FH:
Gunnar Nielsen
Hjörtur Logi Valgarðsson
Steven Lennon
Kristinn Steindórsson
Viðar Ari Jónsson
Davíð Þór Viðarsson
Atli Guðnason
Rennico Clarke
Guðmundur Kristjánsson
Eddi Gomes
Brandur Olsen