Breiðablik tyllti sér á toppinn í Pepsi-deild kvenna í kvöld er liðið mætti Stjörnunni í stórleik.
Blikar voru tveimur stigum á eftir toppliði Þórs/KA fyrir leikinn en Stjarnan heilum sex stigum frá toppnum í fjórða sæti.
Það voru Blikar sem höfðu betur í kvöld en aðeins eitt mark var skorað og það gerði Selma Sól Magnúsdóttir fyrir Blika.
Valur missteig sig á sama tíma í toppbaráttunni en liðið gerði 1-1 jafntefli við Selfoss.
Selfoss var lengi með forystuna í leiknum en undir lokin jafnaði Pála Marie Einarsdóttyr fyrir Val.
Breiðablik 1-0 Stjarnan
1-0 Selma Sól Magnúsdóttir(26′)
Selfoss 1-1 Valur
1-0 Erna Guðjónsdóttir(32′)
1-1 Pála Marie Einarsdóttir(87′)