Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hefur útskýrt af hverju hann ákvað að fá markvörðinn Lee Grant til félagsins í sumar.
Grant er kominn á seinni árin í boltanum en hann var óvænt keyptur til United frá Stoke City.
Mourinho segir að það sé vegna Joel Pereira en Pereira er 22 ára gamall leikmaður United.
Portúgalinn mun þurfa að fara í sumar til að fá spilatíma en hann var þriðji markvörður United á síðustu leiktíð.
,,Við keyptum Lee Grant því við erum með frábæran ungan markvörð sem þarf að fá að spila,“ sagði Mourinho.
,,Ég trúi því að Joel sé markvörður sem getur spilað fyrir Manchester United en hann þarf að fá spilatíma í dag.“