Cristiano Ronaldo er mættur til Ítalíu en hann lét sjá sig á heimavelli félagsins í dag.
Ronaldo hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Juventus eftir langa dvöl hjá Real Madrid á Spáni.
Ronaldo vann allt mögulegt með Madrídarliðinu og ætlar sér nú að gera það sama á Ítalíu þar sem hann hefur aldrei spilað.
Ronaldo var loksins myndaður í treyju Juventus en hann verður númer sjö líkt og hjá Real.
Hér fyrir neðan má sjá myndir af því er Ronaldo var kynntur til leiks.