Cristiano Ronaldo skrifaði á dögunum undir samning við lið Juventus en hann kemur þangað frá Real Madrid.
Óvíst er hvaða leikmaður hjá Juventus mun víkja eftir komu Ronaldo en hann mun eiga fast byrjunarliðssæti á Ítalíu.
Talað er um að annað hvort Gonzalo Higuain eða Mario Mandzukic muni fara frá félaginu í sumar.
Mandzukic var spurður út í komu Ronaldo til Juventus í gær en svar hans var mjög einfalt.
,,Mér er alveg sama,“ svaraði Mandzukic eftir 4-2 tap Króatíu gegn Frakklandi í úrslitaleik HM.