Þeir Höskuldur Gunnlaugsson og Tryggvi Hrafn Haraldsson spiluðu báðir með liði Halmstad í dag í æfingaleik.
Palace undirbýr sig nú fyrir keppni í ensku úrvalsdeildinni og tefldi upp mjög sterku liði.
Palace komst yfir snemma leiks er framherjii Christian Benteke skoraði. Stuttu síðar jöfnuðu þó leikmenn Halmstad.
Eftir mark Halmstad fór allt á fullt hjá Palace og endaði liðið á að vinna mjög sannfærandi 6-1 sigur.
Leikmenn á borð við Benteke, Mamadou Sakho, Patrick van Aanholt, James Tomkins og Andros Townsen spiluðu fyrir Palkace í leiknum.