Antonio Conte var á dögunum rekinn sem knattspyrnustjóri Chelsea á Englandi eftir tveggja ára dvöl þar.
Conte hefur nú loksins tjáð sig eftir brottreksturinn en hann var lengi orðaður við sparkið hjá Chelsea.
Ítalinn hafði ekkert slæmt að segja í dag og vildi einfaldlega þakka öllum fyrir samstarfið í London.
,,Ég vil þakka öllum vinum mínum hjá Chelsea og fyrir þeirra vinnu og stuðning á þessum tveimur árum sem hjálpaði okkur að vinna deildina og bikarinn,“ sagði Conte.
,,Ég vil þakka leikmönnunum, gæði þeirra og tryggð spiluðu stóran þátt í að ná þessum árangri. Ég vil þakka þeim fyrir allt. Það var ánægjulegt að vinna með þeim á hverjum degi.“
,,Ég hef notið þess að vera á Englandi og í London og ég verð að þakka stuðningsmönnum Chelsea sem hafa komi frábærlega fram við mig og mína fjölskyldu.“