Cristiano Ronaldo mun klæðast treyju númer sjö hjá Juventus á næstu leiktíð eftir að hafa samið við félagið á dögunum.
Ronaldo var lengi í treyju númer sjö hjá Real Madrid og hafði engan áhuga á að finna sér nýtt númer á Ítalíu.
Vængmaðurinn Juan Cuadrado þarf því að finna sér nýtt númer og hefur ákveðið að leyfa stuðningsmönnum félagsins að ráða.
Cuadrado stóð fyrir skoðannakönnun á Twitter þar sem hann nefndir fjögur númer sem koma til greina.
Númerin 16, 10, 21 og 49 eru öll nefnd til sögunnar og eins og staðan er núna er 49 með flest atkvæði.
Hvort Cuadrado muni enda á því að virða skoðun stuðningsmanna á eftir að koma í ljós en númerið 49 er ansi sérstakt.