Srdjan Tufegdzic, þjálfari KA, segir að sínir menn hafi átt meira skilið í kvöld er liðið þurfti að sætta sig við 3-1 tap gegn Val á Origo-vellinum.
,,Ég er mjög ósáttur við niðurstöðuna, ég viðurkenni það. Við spiluðum flottan leik á erfiðasta útivelli landsins gegn besta liði landsins,“ sagði Tufa.
,,Við byrjum leikinn smá smeykir og fengum mark á okkur en eftir hálftíma þá stjórnum við leiknum og jöfnum leikinn.“
,,Markið sem við fengum á okkur undir lok fyrri hálfleiks var vont fyrir okkur en við mætum aftur í seinni, héldum bolta vel og erum að skapa færi til að jafna leikinn en náum ekki að skora.“
,,Sumarið hefur verið þannig að fullt af mörkum sem við fáum á okkur koma úr einu eða tveimur færum sem við fáum á okkur í leikjum.“
,,Ég er aldrei ósáttur við dómarana. Ég er alltaf ánægður með þá en ég spurði bara af hverju hann bætti bara við fimm mínútum við eftir að hann hafði stoppað leikinn sjö eða átta sinnum. Það var bara spjald og kannski má maður ekki spyrja að neinu.“