Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var ánægður með að fá þrjú stig gegn KA í kvöld. Valsmenn komust á toppinn með 3-1 sigri.
,,Það er frábært að vinna leikinn, þetta var erfiður leikur og það er geggjað að fá þrjú stig,“ sagði Óli.
,,Það eina sem skiptir máli er að vera á toppnum í september. Það skiptir máli að vera á toppnum í september, þú þekkir það ekki,“ svaraði Óli blaðamanni.
,,Við erum að spila gegn KA sem er fínt fótboltalið og líkamlega sterkir og við svöruðum því ágætlega. Við sýndum það að við getum spilað fast.“