Milan Badej miðjumaður Króatíu segir að Íslandi hafi skemmt fríið sitt með því að vinna liðið síðasta sumar.
Ísland vann Króatíu í undankeppni HM fyrir ári síðan og liðin mætast í 16 liða úrslitum á HM á morgun. Nái Króatía að koma í veg fyrir sigur Íslands, förum við heim.
Króatar þurftu að fara í umspil vegna tapsins í Reykavík og það sveið.
,,Við getum ekki spáð í því hvað aðrir segja, öll lið á HM reyna að horfa fram veginn og vilja hvíla leikmen í þriðja leik. Það er undir þjálfaranum komið að velja besta liðið og það sem er best fyrir okkur,“ sagði Badej en líklegt er að Króatía hvíli menn á morgun, liðið er nánast búið að vinna riðilinn.
,,Við sjáum hvað gerist á morgun, hvort menn verði hvíldir. Við þekkjum íslenska liðið vel, þeir þekkja okkur. Þeir skemmdu fríið okkar með sigrinum á okkur í fyrra. Það var pirrandi, ég er viss um að við finnum leið til að vinna gera upp tapið í Reykjavík.“