Portúgal getur tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum HM í Rússlandi í dag er liðið mætir Íran í lokaumferð B riðils.
Portúgalar eru með fjögur stig eftir fyrstu tvo leikina en Íran er með þrjú stig og getur einnig komist áfram.
Spánverjar eru á toppi riðilsins með fjögur stig en liðið mætir Marokkó á sama tíma.
Hér má sjá byrjunarlið Portúgals og Íran.
Portúgal: Rui Patricio, Cedric, Pepe, Fonte, Guerreiro, Carvalho, Adrien Silva, J. Mario, Quaresma, Ronaldo, Andre Silva
Íran: Beiranvand, Pouraliganji, Hosseini, Hajsafi, Rezaeian, Ezatolahi, Ebrahimi, Taremi, Amiri, Ansarifard, Azmoun