Íslenska landsliðið er mætt til Rostov í Rússlandi en liðið hóf flug þangað fyrr í dag.
Ísland undirbýr sig nú fyrir gríðarlega mikilvægan leik gegn Króatíu á þriðjudaginn en okkar menn verða að vinna þann leik.
Eftir tap gegn Nígeríu í síðasta leik er útlitið ekki of bjart en við þurfum einnig að treysta á sigur Argentínu gegn einmitt Nígeríu.
Leikurinn fer fram í Rostov þar sem nokkrir íslenskir landsliðsmenn þekkja mjög vel til.
Sverrir Ingi Ingason, Björn Bergmann Sigurðarson og Ragnar Sigurðsson leika allir fyrir Rostov í rússnensku úrvalsdeildinni.
Leikið verður á glænýjum heimavelli Rostov og fær landsliðið að æfa á þeim velli fyrir leikinn.