Hörður Snævar Jónsson skrifar frá Rússlandi:
Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur hjá Stöð2 Sport segir að ástarsamband fjölmiðla og Heimis Hallgrímssonar taki enda einn daginn.
Hjörvar telur að sambandið þar á milli hafi verið einstakt síðustu ár, samkenndin hafi verið ótrúleg.
Í Sumarmessunni á Stöð2Sport í gær var rætt um þetta samband, talað var um að Heimir Hallgrímsson hefði verið pirraður á fréttamannafundi eftir tapið gegn Nígeríu.
Heimir fékk þar spurningu um af hverju íslenska liðið hefði verið ólíkt sér og kallaði eftir útskýringu á því.
„Þetta ástarsamband þjálfarans og fjölmiðlamanna, því lýkur einn daginn. Það er kannski loksins að myndast smá núningur þarna á milli,“ sagði Hjörvar í Sumarmessunni.
,,Þetta hefur náttúrulega verið einstakt eftir að hann tók við þessu, þessi einstaka samkennd fjölmiðla og liðsins. Það hefur aldrei slegið á milli.“