Enska landsliðið hefur aðeins einu sinni í sögunni skorað fleiri mörk á HM en í keppninni þetta árið.
England mætti Panama í sínum öðrum leik í keppninni í dag og gerði sér lítið fyrir og skoraði sex mörk.
England hefur því nú skorað átta mörk í keppninni sem er það mesta frá árinu 1990 er liðið gerði einnig átta mörk.
Met Englands á mótinu er 11 mörk en liðið skoraði þau á HM 1966 en hefur ekki komist nálægt því meti síðan.
Það verður að teljast ansi líklegt að metið verði bætt í sumar en liðið á allavegana tvo leiki eftir.