Brasilía er í góðri stöðu með að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit HM fyrir lokaleik riðlakeppninnar gegn Serbíu.
Brasilía er með fjögur stig á toppi síns riðils fyrir lokaumferðina en Sviss er í öðru sætinu með jafn mörg stig og svo kemur Serbía með þrjú.
Brassar urðu fyrir áfalli í dag en möguleiki er á því að Douglas Costa, leikmaður liðsins, spili ekki meira á HM.
Costa er að glíma við meiðsli í læri og er það staðfest að hann spili ekki gegn Serbíu á miðvikudag.
Bakvörðurinn Danilo mun einnig missa af leiknum við Serbíu en meiðsli hans eru þó ekki jafn alvarleg.