Toni Kroos reyndist hetja Þýskalands í kvöld er liðið mætti Svíum í öðrum leik sínum í riðlakeppni HM.
Staðan var jöfn 1-1 þegar 94 mínútur voru komnar á klukkuna sem hefðu verið slæmt úrslit fyrir heimsmeistarana.
Kroos steig þá upp og skoraði glæsilegt mark eftir aukaspyrnu sem var tekin stutt.
Kroos gaf boltann á Marco Reus sem lagði boltann boltann fyrir miðjumanninn sem lagði boltann í netið á magnaðan hátt.
Markið má sjá hér.
WATCH: Tony Kroos staves off elimination for defending World Cup Champion Germany with a goal in added time. #GerSwe pic.twitter.com/sbiw9EWwzE
— Jurado (@JuradoNYC) 23 June 2018