Óvíst er hvort framherjinn Romelu Lukaku nái loka leik Belgíu í riðlakeppni HM í Rússlandi.
Þetta var staðfest í dag eftir leik Belgíu og Túnis þar sem Belgar höfðu betur örugglega 5-2.
Lukaku átti frábæran leik fyrir Belga og skoraði tvö mörk áður en hann yfirgaf völlinn í síðari hálfleik.
Roberto Martinez, þjálfari Belgíu, staðfesti það eftir leikinn að Lukaku hafi meiðst á ökkla.
Belgía og England gætu barist um efsta sæti riðilsins í lokaleiknum og væri það áfall fyrir Belga að missa Lukaku sem hefur gert fjögur mörk á mótinu.