Xherdan Shaqiri reyndist hetja Sviss í dag er liðið mætti Serbíu í riðlakeppni HM í Rússlandi.
Shaqiri og félagar lentu undir snemma leiks er Aleksandar Mitrovic skoraði fyrir þá serbnensku.
Granit Xhaka jafnaði metin fyrir Sviss áður en Shaqiri skoraði sigurmark liðsins í uppbótartíma.
Shaqiri missti sig í fagnaðarlátunum og nældi sér í gult spjald fyrir að rífa sig úr að ofan.
Hann sér væntanlega ekkert eftir því enda kom hann Sviss í góða stöðu í sínum riðli.
Myndir af atvikinu má sjá hér.