Matvöruverslunin Iceland ákvað að nýta tækifærið og grínast á Twitter yfir leik Íslands og Nígeríu í dag.
Iceland er vinsæl matvöruverslun í Bretlandi en er með útibú víðs vegar um Evrópu og þar á meðal hér á landi.
Gylfi Þór Sigurðsson klikkaði á vítaspyrnu í leik dagsins gegn Nígeríu en Ísland tapaði leiknum 2-0.
Gylfi er talinn mjög öruggur á vítapunktinum en spyrna hans í dag var ekki góð og fór vel yfir markið.
Iceland ákvað þá að setja inn færslu á Twitter þar sem þeir segjast hafa fundið boltann sem Gylfi notaði.
Færsluna má sjá hér.
.@Everton can you please retrieve the football that just smashed the window of our Breck Road store and pass on the charge to Gylfi? Thanks.
— Iceland Foods ❄️ (@IcelandFoods) 22 June 2018