Hörður Björgvin Magnússon var niðurlútur í leikslok í dag eftir 2-0 tap Íslands gegn Nígeríu á HM.
Hörður segir að það hafi verið erfitt að verjast nígeríska liðinu sem er með mjög hraða leikmenn fram á við.
,,Það var leiðinlegt að tapa 2-0. Við spiluðum vel í fyrri hálfleik en þeir eru ósköp fljótir og nýttu sér tækifærin á bakvið vörnina og gerðu það vel,“ sagði Hörður.
,,Mörkin voru mjög basic. Þeir gerðu þetta mjög einfalt, við vorum í sókn og þeir nýttu hraðann í skyndisóknum og gerðu það vel. Það er erfitt að verjast þessu þegar við erum komnir allir fram og þurfum að spretta til baka.“
,,Við kennum hitanum ekki um. Þeir voru bara tilbúnari í dag heldur en við.“
,,Við viljum hafa þetta í okkar höndum að geta klárað þetta en við þurfum að treysta á að Argentína vinni ekki stórt og við þurfum að vinna Króatíu. Við erum með fullan fókus á Króatíu.“